Jens Fink-Jensen Íslenska  

Jens Fink-Jensen, rithöfundur, ljóðskáld, ljósmyndari og tónskáld, er fæddur 19. desember 1956 í Kaupmannahöfn.

Hans fyrsta framlag til fagurbókmennta var í júní 1975 með skáldsögunni Júní 1995 sem birtist í dagblaðinu "Information". Ári síðar birtust ljóð hans Skæbnefuglen (Örlagafuglinn), Dagligdags (Hvunndagurinn), Eftermiddagsdigt (Síðdegisljóð) og Etikette (Siðvenja) í tímaritinu "Hvedekorn" nr. 76/1.

Hann gaf út sína fyrstu bók í október 1981, með ljóðasafninu Verden i et øje (Horft á heiminn). Í júní 1986 gaf hann út smásagnasafnið Bæsterne (Vitringarnir) og 1994 kom út hans fyrsta barnabók, Jonas og konkylien (Jónas og konkúllinn).

Jens Fink-Jensen lauk stúdentsprófi úr nýmáladeild Herlufsholm Kostskole 1976. Að því loknu þjónaði hann herskyldu og framhaldsnámi í stjórnun í Konunglegu lífvarðarsveitinni (Den Kongelige Livgarde). Hann lauk arkítektanámi (MAA, cand.arch.) í Kunstakademiets Arkitektskole árið 1986 og námi í margmiðlun úr sama skóla árið 1997.

Útgefin verk
Verden i et øje, ljóðasafninu, 1981
Sorgrejser, ljóðasafninu, 1982
Dans under galgen, ljóðasafninu, 1983
Bæsterne, smásagnasafnið, 1986
Nær afstanden, ljóðasafninu, 1988
Jonas og konkylien, barnabók, 1994 (Illustreret af Mads Stage)
Forvandlingshavet, ljóðasafninu, 1995
Jonas og himmelteltet, barnabók, 1998 (Illustreret af Mads Stage)
Alt er en åbning, ljóðasafninu, 2002
Syd for mit hjerte. 100 udvalgte kærlighedsdigte, ljóðasafninu, 2005
 

Guðrún J. Bachmann íslenskaði.